24 styrkir veittir til þýðinga á íslensku í seinni úthlutun ársins

Þýtt er úr ensku, spænsku, frönsku, sænsku, búlgörsku og þýsku og meðal þýðenda eru Gyrðir Elíasson, Friðrik Rafnsson, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Guðni Kolbeinsson og María Rán Guðjónsdóttir.

5. janúar, 2026

Veittir voru 44 styrkir að upphæð 17,1 mkr í tveimur úthlutunum á árinu; 9 mkr í fyrri úthlutun ársins og 8,1mkr í þeirri síðari.

Miðstöð íslenskra bókmennta veitir styrki til þýðinga á íslensku tvisvar á ári og eru styrkirnir veittir til að þýða mikilvæg verk úr samtímanum, erlendar fagurbókmenntir og fræðirit. Einnig eru veittir styrkir til þýðinga á myndríkum barnabókum.

Á árinu 2025 bárust samtals 80 umsóknir um styrki til þýðinga á íslensku. Veittir voru 44 styrkir að upphæð 17,1 mkr í tveimur úthlutunum.

Í seinni úthlutun ársins, voru veittar 8,1 milljónir króna til 24 verka. 40 umsóknir bárust.

Fjölbreytt verk voru styrkt að þessu sinni og má þar nefna verk eftir höfunda á borð við Pilar Quintana, Holly Jackson, Paul Verlaine, Gustav Flaubert og Gao Xingjian. 

Þýtt er úr ensku, spænsku, frönsku, sænsku, búlgörsku og þýsku og meðal þýðenda eru Gyrðir Elíasson, Friðrik Rafnsson, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Guðni Kolbeinsson og Valgerður Ólafsdóttir.

Meðal verka sem hlutu þýðingastyrki í þessari úthlutun:

Jacaranda eftir Gaël Faye. Þýðandi: Rannveig Sigurgeirsdóttir. Útgefandi: Angústúra

Le perfezioni eftir Vincenzo Latronico. Þýðandi: Þóra Arnórsdóttir. Útgefandi: Benedikt

Den sista fjärilen eftir Nema Hasan. Þýðandi: Aðalsteinn Ásberg SIgurðsson. Útgefandi: DIMMA

Les oubliés du dimanche eftir Velérie Perrin. Þýðandi: Kristín Jónsdóttir. Útgefandi: Forlagið

Hægt er að sjá allar úthlutanir ársins hér

Þess ber að geta að ekki er sótt um styrki til þýðinga á íslensku úr norrænum málum til Miðstöðvarinnar, heldur er sótt um þá styrki til hinna Norðurlandanna, nánar tiltekið til upprunalands bókar sem á að þýða. Sjá nánar hér.

 


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir