Blásið til sóknar íslenskra bókmennta á Norðurlöndum

Miðstöð íslenskra bókmennta stendur fyrir átaki á Norðurlöndum í þeim tilgangi að fjölga þýðingum íslenskra bókmennta á norræn tungumál.

10. febrúar, 2014

Miðstöð íslenskra bókmennta stendur fyrir átaki á Norðurlöndum í þeim tilgangi að fjölga þýðingum íslenskra bókmennta á norræn tungumál.

Næstu þrjú árin stendur Miðstöð íslenskra bókmennta fyrir átaki á Norðurlöndum sem miðar að því að fjölga þýðingum íslenskra bókmennta á norræn tungumál.

Andri Snær Magnason

Í vor mun Miðstöð íslenskra bókmennta kynna íslenskar bókmenntir fyrir dönskum og sænskum útgefendum í samstarfi við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Þar kemur fram rithöfundurinn Andri Snær Magnason, sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin nýverið fyrir Tímakistuna, og bókmenntafræðingurinn Þorgerður E. Sigurðardóttir sem mun ræða strauma og stefnur í íslenskum samtímabókmenntum. Árið 2015 er fyrirhugað að kynna íslenskar bókmenntir fyrir útgefendum í Finnlandi, Noregi, Grænlandi og Færeyjum.




Jafnframt verður lögð áhersla á sýnileika íslenskra höfunda og bókmennta í dagskrá bókamessunnar í Gautaborg í Svíþjóð í haust. Bókamessan í Gautaborg er stærsta bókamessa Norðurlanda en hana sækja árlega um 100.000 gestir. Íslenskur sýningarbás á bókamessunni verður í samstarfi við Íslandsstofu. 

 

Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir