Útgáfustyrkir og fyrri úthlutun þýðingastyrkja 2013

3. júní, 2013

42 útgáfuverkefni og 15 þýðingar á íslensku fengu styrki að þessu sinni, samtals tæpar 28 milljónir. Síðari úthlutun þýðingastyrkja er 15. nóvember.

Stjórn Miðstöðvar íslenskra bókmennta hefur tilkynnt um úthlutun útgáfustyrkja og þýðingastyrkja á íslensku, fyrri úthlutun, fyrir árið 2013 en umsóknarfrestur rann út 22. mars sl.

Alls bárust að þessu sinni 115 umsóknir um útgáfustyrki frá 62 aðilum og var sótt um rúmar 108 milljónir króna. 20.4 milljónum var úthlutað til 42 útgáfuverkefna.  39 umsóknir bárust um þýðingastyrki frá 21 aðila og var sótt um rúmar 22 milljónir króna. Að þessu sinni var úthlutað 6.750.000 kr. í styrki til þýðinga á íslensku.

 

Meðal þeirra verka sem hlutu útgáfustyrki í ár eru:

 §  Af jörðu. Torfhús í íslensku landslagi eftir Hjörleif Stefánsson (Útgefandi: Crymogea)

§  Landbúnaðarsaga Íslands eftir Jónas Jónasson og Árna Daníel Júlíusson (Útgefandi: Skrudda)

§  Orð að sönnu – yfirlitsrit íslenskra málshátta eftir Jón G. Friðjónsson (Útgefandi: Forlagið)

§  Vatnið í náttúru Íslands eftir Guðmund Pál Ólafsson (Útgefandi: Forlagið)

§  Reykvíkingar V-VI eftir Þorstein Jónsson (Útgefandi: Sögusteinn ehf.)

§  Skíðblaðnir – bókmenntatímarit (Útgefandi: Syrpa ehf.)

§  FF(W)D? – samtímarit um tónlist (Útgefendur: Gunnar Karel Másson og Tinna Þorsteinsdóttir)

Hér má finna lista yfir þá aðila sem hlutu útgáfustyrk 2013. Pdf útgáfu má nálgast hér.

 

Meðal þeirra verka sem hlutu þýðingastyrki í ár eru:

 § Mrs. Dalloway eftir Virginiu Woolf. Þýðandi: Atli Magnússon. Úgefandi: Ugla

§ As I Lay Dying eftir William Faulkner. Þýðandi: Rúnar Helgi Vignisson. Útgefandi: Uppheimar     

§ Change eftir Mo Yan. Þýðandi: Böðvar Guðmundsson. Útgefandi: Uppheimar

§  Inheritance of Loss eftir Kiran Desai. Þýðandi: Kjartan Jónsson. Útgefandi: Múltikúlti ehf.

§ The Song of Achilles eftir Madeline Miller. Þýðandi: Þórunn Hjartardóttir. Útgefandi: Lesbók ehf.

Þess má geta að bæði Kiran Desai og Madeline Miller verða gestir á Bókmenntahátíð í Reykjavík í september.

Hér má finna yfirlit yfir þá aðila sem hlutu þýðingastyrki í fyrri úthlutun 2013. Pdf útgáfu er hægt að nálgast hér

 

Upplýsingar um alla styrki sem Miðstöð íslenskra bókmennta veitir má finna hér.

 



Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir