Ljóðstafur Jóns úr Vör

26. janúar, 2012

Hallfríður J. Ragnheiðardóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Triptych“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs.

Ljóðstafur Jóns úr VörHallfríður J. Ragnheiðardóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Triptych“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Samkeppnin er haldin í ellefta sinn en tilgangur hennar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.

Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum á fæðingardegi Jóns úr Vör, 21. janúar. Um 350 ljóð bárust í samkeppnina, undir dulnefni að vanda. Verðlaunaljóð Hallfríðar er þrískipt og ber yfirskrift hvers kafla tilvísun í kristna hefð, fyrsti kaflinn nefnist Sakramenti, annar kaflinn Lausnarorð og sá þriðji Opinberun.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að ljóðið sé ort af öryggi og krafti og ásamt tilvísunum sé það borið upp af sterku myndmáli og markvissri uppbyggingu. „Þetta var ljóð sem dómnefndin kom að aftur og aftur, það óx við hvern lestur," segir m.a. í rökstuðningnum.

Hallfríður hlaut peningaverðlaun og Ljóðstaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu, til varðveislu í eitt ár. Auk þess hlaut hún eignargrip sem Sigmar Maríusson gullsmiður hannaði.

Dómnefnd í ár skipuðu Gerður Kristný, ljóðskáld og rithöfundur, Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og Sigurður Pálsson, ljóðskáld og rithöfundur.

Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs

Á sama tíma voru úrslit kynnt í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs en þau sem urðu í þremur efstu sætunum eru Katrín Kemp úr Vatnsendaskóla fyrir ljóðið Vetrarkvöld, Hrönn Kristey Atladóttir úr Hörðuvallaskóla fyrir ljóð sitt Skógarljóð og Ólafur Örn Ploder úr Álfhólsskóla fyrir ljóð sitt Bolti.

Þrettán grunnskólabörn fengu bókaverðlaun fyrir ljóð sín í grunnskólakeppninni en yfir sextíu ljóð bárust frá sex skólum í Kópavogi.

Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er til slíkrar ljóðasamkeppni meðal grunnskólanema og er stefnt að því að það verði einnig árviss viðburður.

Ljósmynd: kopavogur.is



Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir