Ljóðstafur Jóns úr Vör veittur í tíunda skiptið

31. janúar, 2011

Steinunn Helgadóttir, myndlistarmaður og ljóðskáld, hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs.

Steinunn Helgadóttir, myndlistarmaður og ljóðskáld, hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Kaf“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Steinunn er tíundi handhafi verðlaunanna en tilgangur samkeppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.

Þriggja manna dómnefnd – skipuð Gerði Kristnýju, Jóni Yngva Jóhannssyni og Sigurði Pálssyni – valdi ljóð Steinunnar úr 342 innsendum ljóðum, sem öll bárust samkeppninni undir dulnefni. Í rökstuðningi dómnefndarinnar segir meðal annars að ljóð Steinunnar bregði „upp áhrifamiklum myndum af síðustu ferð rússneska kafbátsins Kursk sem fórst með allri áhöfn í Barentshafi árið 2000 [...] Höfundur kann vel þá vandasömu list að ljúka ljóði. Lokalínurnar tengjast upphafslínunni með sterku myndmáli  og í lokaorðunum eru örlög skipverjanna gefin í skyn með lágstemmdum en áhrifaríkum hætti.“

Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, að kvöldi fæðingardags Jóns úr Vör, 21. janúar. Þar var að auki kynnt ljóðakver, gefið út af lista- og menningarráði, sem hefur að geyma ljóð allra handhafa Ljóðstafsins frá upphafi, en meðal fyrri verðlaunahafa má nefna skáldin Lindu Vilhjálmsdóttur, Óskar Árna Óskarsson og Gerði Kristnýju. Von er á fyrstu ljóðabók Steinunnar síðar á þessu ári sem bókaforlagið Uppheimar gefur út.


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir