Góður NordLit fundur í Kaupmannahöfn

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna.

23. janúar, 2024

Samtök norrænu bókmenntamiðstöðvanna, NordLit, hafa átt gott og gjöfult samstarf um árabil með það sameiginlega markmið að stuðla að auknum sýnileika og útbreiðslu norrænna bókmennta, með ýmsum hætti og miðstöðvarnar geta lært mikið hver af annarri. 

  • NordLit-i-Khofn-2024

Dagana 17.-19. janúar fór fram ársfundur NordLit og að þessu sinni voru Danir (Slots og kulturstyrelsen) gestgjafar fundarins. Á fundinum voru saman komnir 28 fulltrúar bókmenntamiðstöðva allra Norðurlandanna.

Samtök norrænu bókmenntamiðstöðvanna, NordLit, hafa átt gott og gjöfult samstarf um árabil með það sameiginlega markmið að stuðla að auknum sýnileika og útbreiðslu norrænna bókmennta með ýmsum hætti - og miðstöðvarnar geta lært mikið hver af annarri. Dagskrá fundarins var fjölbreytt og samanstóð af vinnustofum, fyrirlestrum sérfræðinga, bókakynningum og fleira. Auk þess fór hópurinn í eftirminnilega heimsókn í Kristjánsborgarhöll. 

Hverjir eru í NordLit?

Auk Miðstöðvar íslenskra bókmennta eru eftirtaldar miðstöðvar í samtökunum: Norla í Noregi, Fili í Finnlandi, FarLit í Færeyjum, Statens Kulturråd/Swedish Arts Council í Svíþjóð og Slots-og kulturstyrelsen/The Danish Arts Council í Danmörku, Greenlit í Grænlandi, og Menningarráð Samalands.

Samvinna innan NordLit á mörgum sviðum

Meðal samstarfsverkefna NordLit er sameiginlegur bás Norðurlandanna á bókamessum og NordLit skipuleggur auk þess ýmis samvinnuverkefni, þýðendaþing, útgefendaskipti, kynningarverkefni, starfsmannaskipti, útgáfu safnrita og fleira.

Norrænir þýðingastyrkir

Jafnframt vinnur NordLit saman að styrkveitingum til þýðinga á norræn mál og annast danska bókmenntamiðstöðin utanumhald norrænna þýðingastyrkja fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar. Hún útdeilir styrkfénu til hinna systurskrifstofanna, sem veita styrkina í sínu landi.

Ákveðið var að næsti NordLit fundur fari fram í Samalandi (Sápmi) í janúar 2025.


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir