NordLit fundur haldinn í Stokkhólmi dagana 15.-17. júní

Haldinn er sameiginlegur vinnufundur starfsfólks bókmenntamiðstöðvanna ár hvert, til skiptis í höfuðborgum landanna.

30. júní, 2022

Í ár var það sænska bókmenntamiðstöðin Statens Kulturråd/Swedish Arts sem var gestgjafi á NordLit fundinum þar sem voru saman komnir starfsmenn bókmenntamiðstöðva allra norðurlandanna.

Samtök norrænu bókmenntamiðstöðvanna, NordLit, eiga gott og gjöfult samstarf með það sameiginlega markmið að efla sýnileika og útbreiðslu norrænna bókmennta með ýmsum hætti - og geta lært mikið hver af annarri. Haldinn er einn sameiginlegur vinnufundur starfsfólks bókmenntamiðstöðvanna í janúar ár hvert, til skiptis í höfuðborgum landanna. 

Í ár var það sænska bókmenntamiðstöðin Statens Kulturråd/Swedish Arts sem var gestgjafi á NordLit fundinum sem eru Á fundinum komu saman 27 starfsmenn bókmenntamiðstöðva allra norðurlandanna.

Hverjir eru í NordLit?

Auk Miðstöðvar íslenskra bókmennta eru eftirtaldar miðstöðvar í samtökunum: Norla í Noregi, Fili í Finnlandi, FarLit í Færeyjum, Statens Kulturråd/Swedish Arts Council í Svíþjóð og Slots-og kulturstyrelsen/The Danish Arts Council í Danmörku og Greenlit í Grænlandi.

Rúm tvö ár frá síðasta fundi

Vegna faraldursins hafa ekki verið haldnir formlegir fundir frá því í janúar 2020, en hann fór fram í Osló. Nokkrir rafrænir fundir hafa þó farið fram um ýmis úrlausnarefni og verkefni. 

Samvinna innan NordLit á mörgum sviðum

Meðal samstarfsverkefna NordLit er sameiginlegur bás Norðurlandanna á bókamessunum í London og í Bologna, og NordLit skipuleggur auk þess ýmis samvinnuverkefni, þýðendaþing, útgefendaskipti, starfsmannaskipti, útgáfu safnrita og fleira.

Norrænir þýðingastyrkir

Jafnframt vinnur NordLit saman að styrkveitingum til þýðinga á norræn mál og annast danska bókmenntamiðstöðin - Statens Kunstråd (Kunst.dk) utanumhald norrænna þýðingastyrkja fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar. Hún útdeilir styrkfénu til hinna systurskrifstofanna, sem veita styrkina í sínu landi.

Ákveðið var að næsti NordLit fundur fari fram í Þórshöfn í Færeyjum í janúar 2023.


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir