Miðstöð íslenskra bókmennta á bókamessunni í London 12.-14. mars

Sameiginlegur bás norrænu bókmenntakynningarstofanna er líkt og undanfarin ár númer 6F70

5. mars, 2019

Miðstöð íslenskra bókmennta verður með systurstofnunum sínum á Norðurlöndunum á bókamessunni líkt og undanfarin ár. Básinn er númer 6F70 og verið öll velkomin!

Miðstöð íslenskra bókmennta á samnorrænum bás í London

Líkt og undanfarin ár standa bókmenntakynningarstofur Norðurlandanna að sameiginlegum bás á bókamessunni í London. Miðstöð íslenskra bókmennta verður þar auk Norla í Noregi, Fili í Finnlandi, Farlit í Færeyjum, Swedish Arts Council/Statens Kulturrad í Svíþjóð og Slots- og kulturstyrelsen/The Danish Arts Council í Danmörku.

Nýr bæklingur kynntur í London

Árlega gefur Miðstöð íslenskra bókmennta út bækling á ensku, sem notaður er til kynningar á íslenskum bókmenntum erlendis. Í London leggur Miðstöðin áherslu á að kynna nýjan bækling, en hún hefur gert sambærilega bæklinga undanfarin fjögur ár, líkt og tíðkast hjá systurstofnunum erlendis. Í bæklingnum í ár, Books from Iceland 2019, má m.a. finna bækur fyrir alla aldurshópa, bækur eftir unga, upprennandi höfunda, verðlaunabækur síðasta árs og lista yfir bækur sem seldar voru erlendum útgefendum á síðasta ári. Efni fyrri ára má finna hér.

London-Book-Fair---yfirlitsmynd

Fjöldi spennandi viðburða í Olympia

Bókamessan í London er nú haldin í 48. sinn og verður í Olympia sýningarhöllinni í vestur London. Sýnendur eru frá öllum heimshornum og um 25.000 fagaðilar á bókasviði frá 130 löndum sækja sýninguna á ári hverju. Einnig er fjöldi ráðstefna, fyrirlestra og pallborðsumræða haldinn í tengslum við sýninguna. Sjá nánar á vef messunnar.

Básinn er númer 6F70

Norræni básinn á bókasýningunni í London er númer 6F70. 

Við hlökkum til að taka þar á móti unnendum íslenskra bókmennta og öllum þeim sem vilja kynnast þeim betur.


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir