Barna- og ungmennabókahöfundar verða áberandi í erlendri kynningu

Árið 2026 leggur Miðstöð íslenskra bókmennta áherslu á barna- og ungmennabækur í erlendu kynningarstarfi

12. janúar, 2026

Nýtt kynningarrit um íslenska barna- og ungmennabókahöfunda í vændum, þátttaka í barnabókamessunni í Bologna og aukinn stuðningur við þýðingar barna- og ungmennabóka á erlend mál. 

Á árinu 2026 leggur Miðstöð íslenskra bókmennta áherslu á íslenskar barna- og ungmennabækur í erlendu kynningarstarfi. Markmiðið er að vekja athygli á höfundum sem skrifa fyrir börn og ungmenni, kynna höfundaverk þeirra fyrir erlendum útgefendum og auka útbreiðslu verkanna erlendis. 

Nýtt kynningarrit um barna- og ungmennabókahöfunda kemur út í mars nk. og verður lagt til grundvallar í erlendri kynningu, meðal annars á barnabókamessunni í Bologna í apríl, en einnig í Gautaborg í september og Frankfurt í október. 

Af þessu tilefni mun Miðstöðin jafnframt auka stuðning til þýðinga og kynningar á íslenskum barna- og ungmennabókum erlendis:

  • 70% af þýðingakostnaði bóka (að hámarki 500.000 kr), að því gefnu að umsóknin uppfylli þær kröfur sem miðstöðin gerir. Sjá nánar hér.
  • Hluta af prentkostnaði á myndríkum barnabókum til útgáfu erlendis, að því gefnu að umsóknin uppfylli kröfur sem miðstöðin gerir. Sjá nánar hér
  • Ferðastyrki til barna- og ungmennabókahöfunda til að kynna verk sín erlendis. 

 

 

 


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir