Auglýst eftir umsóknum um útgáfustyrki, þýðingastyrki á íslensku og styrki úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði.

15. febrúar, 2022

Styrkirnir eru veittir útgefendum á Íslandi og er umsóknarfrestur til 15. mars 2022. 

Utgafustyrkir-audur-thydingar-2022Útgáfustyrkir eru veittir til útgáfu og miðlunar íslenskra ritverka, þar sem kappkostað er að styrkja verk sem hafa menningarlegt og þekkingarfræðilegt gildi. Sjá nánar hér.

Styrkir til þýðinga á íslensku eru veittir til að þýða mikilvæg verk úr samtímanum, erlendar fagurbókmenntir og fræðirit. Auk framangreinds eru veittir styrkir til þýddra vandaðra, myndríkra bóka fyrir börn og ungmenni. Styrkirnir eru ákvarðaðir út frá gæðum og umfangi myndskreytinga, auk texta. Sjá nánar hér.

Barna- og ungmennabókasjóðurinn Auður. Veittir eru styrkir til útgáfu barna- og ungmennabóka sem skrifaðar eru á íslensku. Tilgangurinn er að auðga og efla útgáfu vandaðra bóka fyrir yngri lesendur. Sjá nánar hér.


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir