Miðstöð íslenskra bókmennta tilkynnir síðari úthlutun ársins til þýðinga á íslensku, 8,3 mkr. veitt í 25 styrki

25 styrkir veittir til þýðinga á íslensku í síðari úthlutun ársins; sígild verk, barna- og ungmennabækur og ný skáldverk eru meðal þess sem er styrkt.

15. desember, 2023

Samtals hafa 63 styrkir til þýðinga á íslensku verið veittir á árinu, í tveimur úthlutunum

Þýdd verða verk eftir höfundana Judith Hermann, Isabel Allende, Maggie O'Farell, David Walliams, Milan Kundera og fleiri.

Miðstöð íslenskra bókmennta hefur tilkynnt um seinni úthlutun ársins í  þýðingastyrki á íslensku. Að þessu sinni var 8,3 milljónum veitt í 25 styrki. Þar af eru 6 verk sem teljast til myndríkra barna- og ungmennabóka.

Þýtt er úr frönsku, ensku, þýsku, búlgörsku og spænsku. Meðal þýðenda eru Elísa Björg Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Sunna Dís Másdóttir, Guðni Kolbeinsson, Friðrik Rafnsson og fleiri.

Meðal verka sem hlutu þýðingastyrki í þessari úthlutun:

Las Malas  eftir Camila Sosa Villada. Þýðandi: Birta Ósmann Þórhallsdóttir. Benedikt bókaútgáfa

Deaf Republic eftir eftir Ilya Kaminsky. Þýðandi: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Útgefandi: Dimma

Las memorias de Mamá Blanc eftir Teresu de la Parra. Þýðandi: Kristín Guðrún Jónsdóttir. Útgefandi: Karíba ehf

Changer l'eau des fleurs eftir Valérie Perrin. Þýðandi: Kristín Jónsdóttir. Útgefandi: Forlagið

Hér má sjá heildarúthlutun styrkja til þýðinga á íslensku, síðari úthlutun árið 2023. 

Þess ber að geta að ekki er sótt um styrki til þýðinga á íslensku úr norrænum málum til Miðstöðvarinnar, heldur er sótt um þá styrki til hinna Norðurlandanna, nánar tiltekið til upprunalands bókar sem á að þýða. Sjá nánar hér.

 

 


Allar fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum, frestur til 16. mars - 16. febrúar, 2026 Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í þremur flokkum; útgáfustyrkjum, styrkjum til þýðinga á íslensku og styrkjum úr barna- og ungmennabókasjóðnum Auði

Nánar

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent - 12. febrúar, 2026 Fréttir

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV þann 11. febrúar.

Nánar

Góður NordLit fundur í Helsinki - 26. janúar, 2026 Fréttir

Árlega fer fram sameiginlegur vinnufundur starfsfólks norrænu bókmenntamiðstöðvanna, til skiptis í höfuðborgum landanna, að þessu sinni í Helsinki.

Nánar

Allar fréttir